Það var ánægjuleg stund í Dalabúð sl. föstudag 3. júlí þegar nýr flygill var formlega afhentur og tekinn í notkun. Samstarfverkefni hefur verið í gangi síðustu mánuði með þetta markmið undir yfirskriftinni „Nýr flygill í Dalabúð“. Verkefnið var sett af stað í tilefni af 50. ára afmæli tónlistarskólans í Dölunum sem nú er hluti af Auðarskóla. Var flygillinn vígður á glæsilegum tónleikum í Dalabúð þar sem fram komu Hallveig Rúnarsdóttir, Ólafur Rúnarsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Alvilda Elmarsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir.
Frumkvæði að verkefninu átti Sigurbjörg Kristínardóttir, fyrrverandi tónlistarkennari og organisti, ásamt þeim Kristínu G. Ólafsdóttur og Ólafi Rúnarssyni. Með óeigingjörnu framlagi fjölmargra einstaklinga, fyrirtækja og styrktaraðila tókst að safna fjármagni til kaupanna og fjárfesta í þessu glæsilega hljóðfæri sem nú prýðir Dalabúð.
Nýi flygillinn mun gegna mikilvægu hlutverki í tónlistar- og menningarlífi sveitarfélagsins. Hann nýtist bæði í kennslu við tónlistardeild Auðarskóla, við tónleikahald, kórastarf og aðra menningarviðburði sem haldnir eru í Dalabúð. Með komu hans skapast aukin tækifæri fyrir tónlistarfólk og listafólk til að koma fram við fyrsta flokks aðstæður í hjarta Dalabyggðar.
Afhending flygilsins markar því mikilvægan áfanga fyrir menningarlíf í Dölunum og er skýrt dæmi um hvað samstaða, hugsjón og samfélag samvinna íbúa getur skilað til samfélagsins. Dalabyggð færir öllum þeim sem lögðu verkefninu lið innilegar þakkir og hlakkar til að heyra nýja flygilinn hljóma við fjölmörg tækifæri á komandi árum
