Viðmiðunardagur kjörskrár vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er miðvikudaginn 22. júlí kl. 12 á hádegi.
Viðmunardagur kjörskrár segir til um hvar kjósendur eru skráðir á kjörskrá. Ef kjósandi flytur lögheimili sitt eftir þann tíma er hann enn á kjörskrá miðað við fyrra heimilisfang. Tilkynning um nýtt lögheimili þarf að hafa borist Þjóðskrá fyrir klukkan 12 á hádegi 22. júlí.
Kjörskrá er samskonar og við alþingiskosningar og forsetakjör. Á kjörskrá eru íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili á Íslandi.
Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili á Íslandi hafa kosningarétt í 16 ár frá því þeir flytja af landinu. Eftir þann tíma þarf viðkomandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá fyrir 1. desember ár hvert. Hafi ekki verið sótt um fyrir 1. desember 2025 getur viðkomandi ekki kosið við þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst.
Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi eiga ekki kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðslu og geta því ekki kosið.
Kynningarvefur landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er www.thjodaratkvaedi.is/
Upplýsingavefur landskjörstjórnar um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er https://island.is/v/thjodaratkvaedagreidsla-2026/fyrir-kjosendur-thjodaratkvaedagreidsla
Yfirkjörstjórn Dalabyggðar
