Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 – kjörfundur og kjörskrá

SafnamálFréttir

Kjörfundur í Dalabyggð vegna þjóðaratkvæðagreiðslu verður laugardaginn 29. ágúst 2026 í Stjórnsýsluhúsinu, Miðbraut 11 í Búðardal. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.

Óski kjörstjórn þess, ber kjósanda að framvísa persónuskilríkum á kjörstað.

Kjósandi á rétt til aðstoðar við atkvæðagreiðsluna og þarf ekki að gefa upp neinar ástæður fyrir því. Aðstoð skal veitt af þeim úr kjörstjórn sem kjósandi tilnefnir eða aðstoðarmanni sem fylgir kjósanda á kjörstað. Aðstoðarmanni óheimilt að gerast aðstoðarmaður fleiri en þriggja kjósenda við sömu kosningar.

Kjörskrá fyrir Dalabyggð vegna þjóðaratkvæðagreiðslu liggur frammi til kjördags á skrifstofu Dalabyggðar alla virka daga á opnunartíma. Einnig geta kjósendur séð á heimasíðu Þjóðskrár hvar þeir eru á kjörskrá.

 

Kynningarvefur landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðslu 2026.

Upplýsingavefur landskjörstjórnar um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu 2026.

Upplýsingar um kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 2026.

Upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Dalabyggð

 

Yfirkjörstjórn Dalabyggðar

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei