Sveitarstjórn Dalabyggðar fundar með fulltrúum Vegagerðarinnar

SveitarstjóriFréttir

Sveitarstjórnarfulltrúar, sveitarstjóri og starfsmenn Dalabyggðar áttu samráðsfund með svæðisstjóra og stjórnendum Vegagerðarinnar á Vestursvæði.

Fundurinn var haldinn að frumkvæði sveitarstjórnar Dalabyggðar með það að markmiði að fara yfir stöðu samgangna- og innviða¬mála í sveitarfélaginu, ræða helstu áskoranir, forgangsverkefni næstu ára og efla áfram gott samstarf sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar.

Á fundinum var meðal annars fjallað um stöðu vegakerfisins í Dalabyggð, viðhald og öryggi vega, vetrarþjónustu, verkefni á vegum Vegagerðarinnar sem eru í undirbúningi eða framkvæmd, auk þeirra framkvæmda sem sveitarfélagið telur mikilvægt að verði settar í forgang á næstu árum. Einnig var rætt um mikilvægi greiðra samgangna fyrir íbúa, atvinnulíf og ferðaþjónustu. Lögð var áhersla á að í Dalabyggð hefur verið töluverð uppbygging, fjölgun íbúa og bygging nýrrar og glæsilegrar íþróttamiðstöðvar. Greiðar samgöngur eru mikilvægur þáttur áframhaldandi jákvæðri byggðarþróun á svæðinu.

Á fundinum staðfestu fulltrúar Vegagerðarinnar að fara eigi í tvo kafla á Vestfjarðarvegi á næstu mánuðum. Í lok þessa mánaðar er stefnt að úboði á kaflanum frá Erpstöðum að Haukdadalsá og að framkvæmdir hefjist fljótlega. Einnig á að fara í annan fjölfarin kafla á Vestfjarðarvegi um Saurbæ en munu framkvæmdir á þeim hluta hefjast á þessu ári og ljúka árið 2027. Þá var staðan á Skógarstrandavegi rædd og allir sammála um að það sé mikið hagsmunamál að koma slitlagi á þá leið enda er gert ráð fyrir þeirri framkvæmd inni á núgildandi samgönguáætlun. Ákveðið var að stofna samráðshóp þar sem bæði eiga sæti fulltrúar frá Vegagerðinni og Dalabyggð til að vinna umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið og eiga samráð um þau sameiginlegu uppbyggingarverkefni sem eru framundan.

Fundarmenn lýstu ánægju með opið og uppbyggilegt samtal og þakkar sveitarstjórn Dalabyggðar fulltrúum Vegagerðarinnar fyrir góða heimsókn.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei