Gerð styrkumsókna

DalabyggðFréttir

Viltu auka líkur þínar á að fá styrk úr innlendum sjóðum? Í vinnusmiðjunni verður farið yfir undirstöðuatriði í gerð umsókna um styrki í innlenda sjóði.
Farið verður yfir undirbúning fyrir umsóknir og hvernig styrkumsóknir eru ritaðar. Að vinnusmiðjunni lokinni gefst þátttakendum kostur á að skrifa umsókn og skila til leiðbeinanda innan 14 daga. Leiðbeinandi fer yfir umsóknina, rýnir hana og sendir til baka með upplýsingum um hvað var gott og hvað má bæta.
Leiðbeinandi er Sigurður Steingrímsson, verkefnisstjóri, hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Vinnusmiðjan fer fram í húsnæði Símenntunarmiðstöðvarinnar í Borgarnesi, 20. nóvember kl. 13:00-16:00 og húsnæði Símenntunarmiðstöðvarinnar á Akranesi, 20. nóvember kl. 17:30-19:30.
Vinnusmiðjan er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Skráning er á vef Símenntunar www.simenntun.is og nánari upplýsingar gefur starfsfólk Símenntunar í síma 437 2390.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei