Rúllupylsukeppni Íslands

DalabyggðFréttir

Rúllupylsukeppni Íslands var haldin í Króksfjarðarnesi fullveldisdaginn 1. desember.
Hugmyndin að keppninni kviknaði á Salone del Gusto í Torino. Þar voru á ferð Þorgrímur og Helga á Erpsstöðum auk Höllu í Ytri-Fagradal að selja heimaframleiðslu sína á Slow-Food matarhátíðinni þar. Í anda Slow-Food ákváðu þau að efna til samkeppni í rúllupylsugerð til að vekja athygli á gömlum og góðum íslenskum matarhefðum.
Þátttaka var viðunandi m.t.t. að ekki tóku allir keppnina alvarlega og héldu að þetta væri bara enn ein vitleysan sem Höllu og Þorgrími dytti í hug. Rúllupylsur bárust í keppnina af Ströndum, Reykhólasveit, Dölum og Suðurnesjum. Flestum kom fjölbreytt úrvinnsla virkilega á óvart og verður nú vart aftur snúið að halda keppnina aftur að ári.
Dómarar voru Dominique Plédel Jónsson formaður Slow-Food samtakanna á Íslandi og Ómar B. Hauksson kjötiðnaðarmeistari í Borgarnesi. Eftir mikla yfirlegu og mikið smakk var niðurstaðan sú að sigurvegarar keppninnar væru Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson í Húsavík á Ströndum fyrir léttreykta rúllupylsu. Hafdís og Matthías tóku einnig önnur verðlaun fyrir ávaxtafyllta rúllupylsu. Sérstaka viðurkenningu fékk síðan rúllupylsa frá Sverri Kristjánssyni og Heiðrúnu Sigurðardóttur í Reykjanesbæ.
Í lokin fengu allir gestir að smakka á rúllupylsunum. Og hafði hver og einn sína skoðun á því hvaða rúllupylsa væri best, enda smekkur fólks mismunandi.
Allir þeir sem að keppninni stóðu eiga þakkir skyldar; Þorgrímur og Halla fyrir hugmyndina og framkvæmdina, Dominique og Ómar fyrir dómarastörf og Handverkshópurinn Assa fyrir aðstöðuna.
Myndir frá rúllupylsukeppninni eru í myndasafninu, teknar af Valdísi Einarsdóttur.

Myndir frá rúllupylsukeppninni

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei