Gott kvöld

DalabyggðFréttir

Leikfélag Hólmavíkur sýnir barnaleikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur um hátíðirnar.
Leikarar eru 22 og flestir þeirra á grunnskólaaldri, en reynsluboltar úr leikfélaginu taka einnig þátt í sýningunni. Leikstjóri er Kristín Sigurrós Einarsdóttir á Hólmavík.
Í leikritinu segir frá hugmyndaríkum strák sem er aleinn heima um kvöld með bangsa sér til halds og trausts, þegar pabbi skreppur að sækja mömmu. Ótal furðuskepnur koma í heimsókn, meðal annars hungurvofa og hrekkjusvín, hræðslupúki og letihaugur, þannig að stráksi og bangsi hafa í nógu að snúast. Leikritið hlaut tilnefningu til Grímuverðlaunanna árið 2008 sem besta barnaleikritið.
Frumsýning verður í félagsheimilinu á Hólmavík 29. desember kl. 20:00. Aðrar sýningar eru 30. desember, 4. janúar og 6. janúar. Sýnignar hefjast kl. 20, nema 6. janúar hefst sýning kl. 21:00.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei