Þorrablót Suðurdala

DalabyggðFréttir

Þritugasta og níunda þorrablót Suðurdala verður haldið í Árbliki laugardaginn 4. febrúar. Húsið opnar kl. 20 og borðhald hefst kl. 20:30.
Höfðakaffi sér um matinn, Suðurdalamenn um skemmtiatriðin og hljómsveitin „Gammel Dansk“ um dansleikinn.
Miðapantanir þurfa að berast í síðasta lagi þriðjudaginn 31. janúar til Ernu í síma 434 1372 / 865 4342 eða Rakelar í síma 434 1103 / 869 3193. Athugið að panta þarf miða á dansleikinn.
Almennt miðaverð er 5.500 kr, en fyrir eldri borgara og öryrkja 4.500 kr. Miði eingöngu á dansleik kostar 3.500 kr. Miðar verða seldir í Bolla föstudaginn 3. febrúar kl. 13-15. Ekki verður hægt að greiða með greiðslukortum.
Aldurstakmark er 16 ára.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei