Laust starf skólaliða

DalabyggðFréttir

Skólaliða vantar í 68,75% starf við leikskóladeild Auðarskóla. Vinnutími er frá 11.30 – 17.00. Næsti yfirmaður er aðstoðarleikskólastjóri.
Á starfsviði skólaliða er vinna við þrif, í eldhúsi og þvottahúsi, við afleysingar í forföllum og ýmis önnur störf.
Þrif
Skólaliðin sér um öll hefðbundin dagþrif á leikskólanum. Þrifin fara fram þegar einstök svæði eru ekki í notkun. Aðstoðarleikskólastjóri og skólaliði gera í sameiningu áætlun (skema) um þrifin í upphafi skólaárs. Heilþrif eru ekki inni á verksviði skólaliða.
Eldhús
Móttaka á mat frá eldunaraðila í hádegi og frágangur í móttökueldhúsi að loknum hádegismat. Einnig aðstoð við framreiðslu og frágang í síðdegiskaffi.
Þvottahús
Allir tilfallandi þvottar á tuskum og fl. í þvottahúsi leikskólans.
Aðstoð vegna forfalla
Tímabundin aðstoð við umönnun í forföllum starfsmanna í umönnun.
Önnur störf
Einstaka störf sem skólastjóri/aðstoðarleikskólastjóri felur skólaliðanum; t.d. sendiferðir og fl.
Áhugasamir hafi samband við Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóra í síma 899 7037 eða á netfangið eyjolfur@audarskoli.is.

Auðarskóli

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei