Breytingar á sorphirðu í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn hefur ákveðið, að höfðu samráði við Gámaþjónustu Vesturlands ehf. að almenn sorphirða frá heimilum verði á 14 daga fresti frá mánaðarmótunum mars/apríl. Þannig verður sorp hirt mánudaginn 24. mars en næst þriðjudaginn 1. apríl og annan hvern þriðjudag þaðan í frá.

Flokkunarkrá

Samhliða þessu verða gerðar breytingar á flokkunarstöðinni við Vesturbraut (gámavellinum) þannig að íbúar geta komið með flokkað sorp á öllum tímum sólarhrings og losað í svokallaða flokkunarkrá.
Í flokkunarkrá er hægt að láta frá sér eftirfarandi sorpflokka:
· Bylgjupappi og sléttur pappi.
· Plastfilma og pokar.
· Fernur.
· Dagblöð, tímarit og annar pappír.
· Málmar / niðursuðudósir.
· Rafhlöður.
· Plastbrúsar og aðrar plastumbúðir.
· Kertavax
Flokkunarkráin verður aðgengileg allan sólarhringinn, en annað endurvinnsluefni og úrgang s.s. stærri hluti, spilliefni, frauðplast, timbur, járn og gler þarf eftir sem áður að láta frá sér á opnunartíma flokkunarstöðvarinnar (gámavallar).

Opnunartímar endurvinnslustöðvarinnar

Frá 1. apríl verður flokkunarstöðin opin tvo daga í viku, þriðjudaga 15 – 18 og laugardaga 11 – 14.

Aukatunna

Með því að flokka sorp í helstu sorpflokka sbr. hér að ofan á ein sorptunna að nægja hverju heimili. Ef sú verður ekki raunin er mögulegt að panta aukatunnu. Gjald fyrir losun aukatunnu er kr. 14.980 pr. ár skv. gjaldskrá Dalabyggðar fyrir árið 2014.

Gámar fyrir timur og járn í dreifbýlinu

Eins og á fyrra ári verður farið með gáma fyrir timbur og járn um sveitarfélagið. Gert er ráð fyrir að þetta verði í júnímánuði og gámar verði í u.þ.b. eina viku á hverjum stað.
Eins og á fyrra ári verður farið með gáma fyrir timbur og járn um sveitarfélagið. Gert er ráð fyrir að þetta verði í júnímánuði og gámar verði í u.þ.b. eina viku á hverjum stað.

Sorphirðudagatal 2014

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei