Félögum sauðfjárbænda á Snæfellsnesi, í Borgarfirði og Dölum er boðið upp á stutt námskeið í tilefni þess að Landbúnaðarháskóli Íslands leiðir nú tveggja ára fjölþjóðlegt verkefni um sauðfjárrækt í víðu samhengi.Námskeiðið verður haldið í Leifsbúð í Búðardal 4. og 11. apríl, kl. 20-22. Að námskeiðinu stendur LbhÍ í samstarfi við Búnaðarsamtök Vesturlands og héraðsdýralækni.
 
Skráningar þurfa helst að berast til Endurmenntunar LbhÍ fyrir 1. apríl. Nauðsynlegar upplýsingar um hvern og einn eru; nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Hægt er að skrá sig í síma 433 5000 eða senda á netfangið endurmenntun@lbhi.is.

Ekkert námskeiðsgjald er innheimt og því tilvalið fyrir alla sem koma að sauðburði á hverju búi að mæta.
Mánudagskvöldið 4. apríl, kl. 20-22 í Leifsbúð
- 
Árni B. Bragason BV heldur fyrirlestur um sjúkdóma og sauðfé.
 - 
Þátttakendur fá ljósritað leshefti ásamt spurningum úr efninu og netslóðum þar sem svör er að finna.
 - 
Kaffispjall.
 - 
Hjalti Viðarsson dýralæknir heldur fyrirlestur um lyfjanotkun.
 
Mánudagskvöldið 11. apríl, kl. 20 – 22 í Leifsbúð.
- 
Eyjólfur Kristinn Örnólfsson með erindi um sauðburðarhjálp
 - 
Hjalti Viðarsson héraðsdýralæknir svarar spurningum
 - 
Námskeiðsslit og mat.