Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Miklar endurbætur á leikskóladeild Auðarskóla í sumar”
24.08.2026

Miklar endurbætur á leikskóladeild Auðarskóla í sumar

Í sumar var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á leikskóladeild Auðarskóla með það að markmiði að bæta aðstöðu fyrir börn og starfsfólk. Framkvæmdirnar hafa lífgað töluvert upp á húsnæðið og skapað enn betra umhverfi fyrir daglegt starf leikskólans. Eldhúsið var uppfært og aðstaðan þar bætt. Allur gólfdúkur var bónaður og yfirfarinn, en einnig voru deildir, salur og gangar máluð. Með þessum
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Þakkir frá sveitarfélaginu”
19.08.2026

Þakkir frá sveitarfélaginu

Dalabyggð vill færa viðbragðsaðilum, ferðaþjónustuaðilum og öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd vegna almyrkvans innilegar þakkir fyrir faglegt og vel unnið starf. Undirbúningur vegna viðburðar af þessari stærðargráðu krefst mikillar samvinnu, framsýni og skipulagningar og var ánægjulegt að sjá hversu vel allir hagsmunaaðilar unnu saman að því að tryggja öryggi, góða þjónustu og jákvæða upplifun gesta og heimamanna.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Síðasti dagur vinnuskólans í Dalabyggð”
10.07.2026

Síðasti dagur vinnuskólans í Dalabyggð

Í gær lauk starfsemi vinnuskólans í Dalabyggð þetta sumarið. Að venju fengu ungmennin sjálf að ráða dagskrá síðasta dagsins og var hann bæði skemmtilegur og viðburðaríkur. Meðal annars fengu þau að fara í siglingu með Björgunarsveitinni Ósk, horfðu saman á kvikmynd og gerðu sér glaðan dag með grillveislu. Undanfarna daga og vikur hafa ungmennin lagt sitt af mörkum til að
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Nýr flygill afhentur Dalabyggð – stór áfangi fyrir menningarlíf í Dölunum”
06.07.2026

Nýr flygill afhentur Dalabyggð – stór áfangi fyrir menningarlíf í Dölunum

Það var ánægjuleg stund í Dalabúð sl. föstudag 3. júlí þegar nýr flygill var formlega afhentur og tekinn í notkun. Samstarfverkefni hefur verið í gangi síðustu mánuði með þetta markmið undir yfirskriftinni „Nýr flygill í Dalabúð“. Verkefnið var sett af stað í tilefni af 50. ára afmæli tónlistarskólans í Dölunum sem nú er hluti af Auðarskóla. Var flygillinn vígður á
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Rotþróahreinsun 2026”
06.07.2026

Rotþróahreinsun 2026

Í Dalabyggð eru rotþrær hreinsaðar á þriggja ára fresti. Í ár, 2026, mun hreinsun fara fram í Hörðudal, Miðdölum og Haukadal og hefst verkið þriðjudaginn 6. júlí. Kostnaður við rotþróahreinsun er innheimtur með fasteignagjöldum. Dalabyggð vill brýna fyrir fólki að hafa allt klárt fyrir rotþróahreinsun s.s. gæta að merkingum rotþróa t.d. með veifum og auðvelda aðgengi að rotþróm. Þá þarf að koma
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Dagskrá Bæjarhátíðar uppfærð”
03.07.2026

Dagskrá Bæjarhátíðar uppfærð

3. júlí föstudagur kl. 18 -19:30 Dalía Karaókíveisla fyrir alla fjölskylduna sem Sandra Barilli karaókí drottning Íslands stýrir. Engin skráning – bara mæta. kl. 20 Dalabúð Söngveisla. Fjölbreytt söngdagskrá, allt frá óperuperlum til sönglaga. Posi á staðnum. Önnur þjónusta Kl 12-21 Blys Kl. 12-14 og 18-21 Dalahótel Kl 14 – 23 Dalía Kl 11-16 Dýragarðurinn í Hólum Kl. 10 –
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Einar Björn Þorgrímsson ráðinn lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar”
02.07.2026

Einar Björn Þorgrímsson ráðinn lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar

Einar Björn Þorgrímsson hefur verið ráðinn í starf lýðheilsufulltrúa hjá Dalabyggð. Hann tekur við starfinu af Ísaki Sigfússyni og hefur störf þann 15. ágúst nk. Einar er með BS-gráðu í íþrótta- og heilsufræði frá Háskóla Íslands og er um þessar mundir að ljúka meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Einar býr yfir fjölbreyttri reynslu af störfum með
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Dagbók sveitarstjóra 15.–27. júní (fyrstu tvær vikurnar í starfi)”
29.06.2026

Dagbók sveitarstjóra 15.–27. júní (fyrstu tvær vikurnar í starfi)

Fyrsti vinnudagurinn minn hjá Dalabyggð var 15. júní og má segja að hann hafi gengið afar vel. Fyrstu tímarnir fóru að mestu í ýmis hagnýt atriði, svo sem að komast inn í tölvukerfi, skjalakerfi og annað sem þarf til að hefja störf. Það er notaleg tilfinning að koma aftur í Dalina og allir sem ég hef hitt hafa tekið mjög
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Skrifstofa sýslumanns er lokuð 25. júní”
25.06.2026

Skrifstofa sýslumanns er lokuð 25. júní

Skrifstofa sýslumanns í Búðardal verður lokuð í dag fimmtudaginn 25. júní
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sumarlokun Héraðsbókasafns 2026”
16.06.2026

Sumarlokun Héraðsbókasafns 2026

Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað frá 1. júlí til og með 5. ágúst nk. vegna sumarleyfa. Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er þriðjudagurinn 30. júní og verður safnið opnað að nýju fimmtudaginn  6. ágúst. Nú er því um að gera að ná sér í lesefni fyrir sumarið áður en sumarlokun hefst.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Timbur og járnagámar sumar 2026”
05.06.2026

Timbur og járnagámar sumar 2026

Gámarnir verða staðsettir á hverjum stað í um vikutíma. Stað- og tímastaðsetningar gáma (með fyrirvara um mögulegar breytingar): Staður Vika Dagsetningar Tjarnarlundur 1 18. jún 24. jún Skarð 1 18.jún 24. jún Ytra-Fell 2 25.jún 1.júl Valþúfa 2 25.jún 1.júl Leysingjastaðir 3 2.júl 8.júl Svarfhóll 3 2.júl 8.júl Eiríksstaðir 4 9.júl 15.júl Árblik 4 9.júl 15.júl Blönduhlíð 5 16.júl 22.júl
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Ungmennahús í Dölum – sumar 2026”
05.06.2026

Ungmennahús í Dölum – sumar 2026

Í sumar bíður Dalabyggð upp á stað þar sem ungt fólk í Dalabyggð getur komið saman. Nokkur kvöld í sumar verður opið hús í Nýsköpunarsetrinu í sýsluhúsinu þar sem ungt fólk er boðið velkomið, árgangur 2009 og uppúr. Opið er frá kl. 20-23 og aðgangur er ókeypis. Maður er manns gaman og er allt ungt fólk er hvatt til að
Skoða betur
Fréttir.