Í gær lauk starfsemi vinnuskólans í Dalabyggð þetta sumarið. Að venju fengu ungmennin sjálf að ráða dagskrá síðasta dagsins og var hann bæði skemmtilegur og viðburðaríkur. Meðal annars fengu þau að fara í siglingu með Björgunarsveitinni Ósk, horfðu saman á kvikmynd og gerðu sér glaðan dag með grillveislu.
Undanfarna daga og vikur hafa ungmennin lagt sitt af mörkum til að fegra þorpið. Þau hafa sinnt fjölbreyttum verkefnum, meðal annars við hreinsun og snyrtingu á opnum svæðum, gróðurbeðum og öðrum sameiginlegum svæðum í sveitarfélaginu. Framlag þeirra hefur verið bæði sýnilegt og mikilvægt fyrir ásýnd og umhverfi sveitarfélagsins. Starfið í sumar fór fram undir dyggri leiðsögn Sigríðar Jónsdóttur.
Dalabyggð vill færa öllum þátttakendum vinnuskólans innilegar þakkir fyrir gott samstarf og vel unnin störf í sumar. Ungmennin hafa staðið sig afar vel og eiga hrós skilið fyrir dugnað, jákvætt viðmót og góða samvinnu. Við óskum þeim öllum góðs gengis í þeim verkefnum sem fram undan eru og vonum að sumarið eigi eftir að reynast þeim ánægjulegt. 🌞
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá síðasta deginum og starfinu í sumar.

