Einar Björn Þorgrímsson hefur verið ráðinn í starf lýðheilsufulltrúa hjá Dalabyggð. Hann tekur við starfinu af Ísaki Sigfússyni og hefur störf þann 15. ágúst nk.
Einar er með BS-gráðu í íþrótta- og heilsufræði frá Háskóla Íslands og er um þessar mundir að ljúka meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Einar býr yfir fjölbreyttri reynslu af störfum með börnum og ungmennum. Hann hefur meðal annars sinnt viðburðastjórnun og starfað í félagsmiðstöðvum, hjá Vinnuskóla Kópavogs, sem íþróttakennari í grunnskóla og í félagsstarfi fyrir ungmenni með stuðningsþarfir.
Bjóðum við Einar velkominn til starfa.
