04.02.2021
Álagning fasteignagjalda
Álagningu fasteignagjalda (fasteignaskattur, lóðarleiga, vatnsgjald, sorpgjald, fráveita og rotþróargjald) er lokið og hafa álagningarseðlar verið birtir á Ísland.is. Fyrir þá sem greiða upp fasteignagjöldin fyrir 15. febrúar er 3% staðgreiðsluafsláttur. Álagningarseðlar verða ekki sendir á pappír heldur aðeins birtir á Ísland.is. Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í tölvupósti eða útprentaðan geta sent beiðni um slíkt á dalir@dalir.is
Skoða betur






