Kjörfundur í Dalabyggð vegna forsetakosninga verður í félagsheimilinu Dalabúð laugardaginn 1. júní 2024. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. Óski kjörstjórn þess, ber kjósanda að framvísa persónuskilríkum á kjörstað. Kjörskrá fyrir Dalabyggð vegna forsetakosninga liggur frammi til kjördags á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11 í Búðardal, alla virka daga kl. 9:00 – 13:00. Einnig geta kjósendur séð á heimasíðu Þjóðskrár …
Íbúð laus til leigu í Búðardal
Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um úthlutun íbúðar til leigu við Bakkahvamm 8C í Búðardal. Um er að ræða eina þriggja herbergja, 75 m² íbúð í raðhúsi á einni hæð. Markmið Brák íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að …
Frístundastyrkur hækkaður fyrir vorönn 2024
Við uppgjör á frístundastyrk vor 2024 var ákveðið að hækka styrkinn um 5.000kr.- á hvert barn sem sótt var um fyrir. Byggðarráð staðfesti þessa ákvörðun á fundi sínum 23. maí sl. Reglur um frístundastyrk gera ráð fyrir að greitt sé tvisvar á ári, allt að 10.000kr.- fyrir vorönn og allt að 10.000kr.- fyrir haustönn. Vegna hækkunar verður frístundastyrkur vorið 2024 …
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Forsetakjör verður laugardaginn 1. júní nk. Atkvæðagreiðsla utankjörfundar er hafin. Í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi fer hún fram á eftirtöldum stöðum: Akranesi – skrifstofu sýslumanns, Kirkjubraut 28, 2. hæð Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00:00 til 15:00 og kl. 09:00 til 14:00 á föstudögum. Borgarnesi – skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2 Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00:00 til 15:00 og kl. 09:00 til …
Vekjum athygli á lausum störfum á Silfurtúni !
Hjúkrunarheimilið Silfurtún – HVE Búðardal Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 50-100% og er ákveðið með deildarstjóra Silfurtúns Helstu verkefni og ábyrgð Almennur starfsmaður ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum umönnun og hjúkrun í samræmi við markmið og stefnu hjúkrunar hjá stofnuninni. Almennur starfsmaður ber ábyrgð á störfum sínum í samræmi við lög nr. 34/2012 um …
Farsældardagurinn á Vesturlandi 2024
Farsældardagur Vesturlands var haldinn í Borgarnesi í gær. Fjölmennt var á deginum og voru fulltrúar frá öllum sveitarfélögum á Vesturlandi saman komin og var markmið dagsins að styrkja bæði þekkingu og tengslanet þeirra aðila sem koma að farsældarþjónustu barna og ungmenna á Vesturlandi. Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra setti daginn og skrifað var undir samkomulag við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi um …
Ímynd Dalanna – hvað einkennir samfélagið og svæðið?
Í gær, miðvikudaginn 16. maí var haldinn opinn fundur vegna verkefnisins Dalabyggð í sókn. Verkefnið er styrkt af Byggðaráætlun og er markmiðið með því að efla ímynd Dalanna út á við og þannig hvetja fólk bæði til að heimsækja svæðið og setjast hér að. Á fundinum fór Ingvar Örn Ingvarsson frá ráðgjafafyrirtækinu Cohn&Wolfe yfir verkefnið og kallað var eftir hugmyndum …
Forsetakosningar 2024
Kjörfundur í Dalabyggð vegna forsetakosninga verður í félagsheimilinu Dalabúð laugardaginn 1. júní 2024. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. Óski kjörstjórn þess, ber kjósanda að framvísa persónuskilríkum á kjörstað. Kjörskrá fyrir Dalabyggð vegna forsetakosninga liggur frammi til kjördags á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11 í Búðardal, alla virka daga kl. 9:00 – 13:00. Einnig geta kjósendur séð á heimasíðu Þjóðskrár …
Opnunartími bókasafns sumar 2024
Héraðsbókasafn Dalasýslu er opið á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 12:30 til 17:30. Áður var auglýst skert opnun í maí en það verður ekki. Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er fimmtudagurinn 27. júní. Bókasafnið verður þannig lokað frá 28. júní til og með 5. ágúst, opnar að nýju eftir sumarleyfi þriðjudaginn 6. ágúst. Nú er um að gera að skoða tilvonandi …
Frístundastyrkur – frestur framlengdur
Til að fá frístundastyrk fyrir börn á aldrinu, 3 til 18 ára greiddan þarf að skila umsókn ásamt greiðslukvittunum til skrifstofu Dalabyggðar. Í reglunum segir að þær skuli berast eigi síðar en 15. maí en þar sem einhver gögn voru lengi að berast er gefinn frestur til og með föstudeginum 24. maí nk. Hægt er að koma með greiðslukvittanir á …