Þann 1. febrúar sl. voru liðnir 18 mánuðir, eitt og hálft ár, síðan ég tók við starfi sveitarstjóra í Dalabyggð og þann 8. febrúar sl. var haldinn 20. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar síðan samstarf mitt við þann öfluga hóp hófst. Það hefur ýmislegt áunnist á þeim tíma sem um ræðir og enn fleira er í farvatninu. Það ríður á að samstarf …
Dalabyggð auglýsir eftir tillögu að verki við innkomu í Búðardal
Sveitarfélagið Dalabyggð kallar eftir tillögum að frumhönnun á aðkomutákni sem býður fólk velkomið í þéttbýliskjarnann Búðardal. Um er að ræða verk sem staðsett verður við innkomu í þorpið en eftir er að velja endanlega staðsetningu. Tilgangur með því að auglýsa eftir hönnun er að fá fram tillögu að verki sem best er fallin til framkvæmdar. Það er samstarfshópur Dalabyggðar, Vegagerðarinnar …
Bæir í Saurbæ
Byggðasafn Dalamanna hefur sett upp nýja sýningu í anddyri stjórnsýsluhússins með ljósmyndum af bæjum í Saurbæ um 1965-1970. Ljósmyndirnar eru teknar af Sigurhans Vigni frá Hróðnýjarstöðum og eru hluti af myndum hans af velflestum bæjum í Dölum á þessum tíma. Myndir af bæjum í Hörðudal og Miðdölum eru til sýnir í Árbliki í Miðdölum. Myndasafnið í heild sinni hefur verið …
Sveitarstjórn Dalabyggðar – 243. fundur
FUNDARBOÐ 243. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 8. febrúar 2024 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2401044 – Fjárhagsáætlun 2024 – Viðauki I 2. 2401021 – Varúðarniðurfærsla skatt- og viðskiptakrafna og afskriftir v/2023 3. 2301066 – Viðmiðunarreglur um snjómokstur og hálkuvarnir 4. 2110034 – Drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu 5. 2205016 – …
Álagning fasteignagjalda 2024
Álagningu fasteignagjalda (fasteignaskattur, lóðarleiga, vatnsgjald, sorpgjald, fráveita og rotþróargjald) er lokið og hafa álagningarseðlar verið birtir á Island.is. Fyrir þá sem greiða upp fasteignagjöldin fyrir 15. febrúar er veittur 5% staðgreiðsluafsláttur. Einhverjir vilja leggja beint inn fyrir fasteignagjöldunum, þá þarf að muna að senda tilkynningu á ingibjorgjo@dalir.is Reikningsupplýsingar fyrir greiðslu fasteignagjalda eru: kt. 510694-2019 rkn.nr. 0312-26-1818 Álagningarseðlar verða ekki sendir á pappír heldur …
Söfnunarstöð fyrir úrgang – gjaldtaka
Á síðasta fundi sveitarstjórnar var samþykkt uppfærð gjaldskrá fyrir hirðingu, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð sem tekur gildi frá og með 1. febrúar. Fyrir utan hækkun á almennu sorphirðugjaldi í samræmi við aukinn kostnað í málaflokknum er tekið upp nýtt fyrirkomulag við gjaldtöku við móttöku gjaldskylds úrgangs á söfnunarstöðinni í Búðardal. Árin 2021 og 2022 var notast við klippikort …
Opið fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð DalaAuðs
Opið er fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð DalaAuðs Umsóknarfrestur er til hádegis 29. febrúar 2024. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir nýsköpunar- menningar- og samfélagsverkefni í Dalabyggð. Samtals eru 18.375.000 kr. til úthlutunar að þessu sinni. Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur DalaAuðs má finna á vef SSV Yfirlit yfir þau verkefni sem fengið hafa styrk má finna á vef Byggðastofnunar Nánari upplýsingar og aðstoð við undirbúning …
Dalabyggð greiðir aðgang elli- og örorkulífeyrisþega að líkamsræktinni
Á sveitarstjórnarfundi þann 18. janúar var samþykktur samningur við Ungmennafélagið Ólaf pá um afnot elli- og örorkulífeyrisþega af líkamsræktarstöð félagsins að Vesturbraut 8 í Búðardal. Regluleg hreyfing er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega heilsu og vellíðan. Rannsóknir sýna að reglubundin líkamsrækt við hæfi styður við aukna virkni og árangur í endurhæfingu. Þá er líkamsþjálfun fyrir eldra fólk gríðarlega mikilvæg og …
Akstur úr Búðardal í Borgarnes (leið 65) hefst 2. febrúar 2024
Sl. sumar var tilkynnt að styrkur hefði fengist frá Byggðastofnun í tilraunaverkefni vegna aksturs milli Búðardals og Borgarness þar sem megin áhersla væri að bjóða framhaldskólanemum í Dalabyggð skólaakstur úr Búðardal í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Unnið hefur verið hörðum höndum að því að koma akstrinum á og varð ljóst að núverandi almenningssamgöngur milli Búðardals og Borgarnes myndu ekki geta …
Frumkvæðissjóður DalaAuðs opnar 1. febrúar
Opnað verður fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð DalaAuðs 1. febrúar 2024 Umsóknarfrestur er til hádegis 29. febrúar 2024. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir nýsköpunar- menningar- og samfélagsverkefni í Dalabyggð. Samtals eru 18.375.000 kr. til úthlutunar að þessu sinni. Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur DalaAuðs má finna á vef SSV: Vefsvæði DalaAuðs Yfirlit yfir þau verkefni sem fengið hafa styrk má finna á vef Byggðastofnunar: Brothættar …