FUNDARBOÐ Sameiginlegur fundur sveitarstjórnar og ungmennaráðs Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 15. júní 2023 og hefst kl. 16:00 Fundurinn er öllum opinn og verður honum streymt eins og hefðbundnum sveitarstjórnarfundum á YouTube-síðu Dalabyggðar. Vegna þess að ákveðið var að halda sameiginlegan fund er fundur ungmennaráðs hér boðaður með skemmri tíma en erindisbréf segir til um. Í …
Könnun vegna nýsköpunar á Vesturlandi
SSV, Nývest og Gleipnir – nýsköpunar- og þróunarsetur á Vesturlandi bjóða öllum íbúum Vesturlands að taka þátt í könnun um tækifæri til nýsköpunar á Vesturlandi. Á Vesturlandi er frjór jarðvegur og fjölmörg tækifæri til nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi. Við viljum efla stuðningsumhverfi nýsköpunar á Vesturlandi enn frekar og markmið könnunarinnar því að leita hugmynda að aðgerðum sem ráðast má í til …
Sveitarstjórn Dalabyggðar – 235. fundur
FUNDARBOÐ 235. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 15. júní 2023 og hefst kl. 17:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2205013 – Kjör oddvita og varaoddvita 2. 2205014 – Kosning aðal- og varamanna í byggðarráð 3. 2306021 – Fundir sveitarstjórnar sumarið 2023 4. 2208004 – Vegamál 5. 2206033 – Jafnréttisáætlun 6. 2305025 – Umsókn um framkvæmdaleyfi …
Matjurtagarðurinn tilbúinn
Nú er búið að tæta matjurtagarðinn í Búðardal fyrir áhugasama. Þar geta íbúar Dalabyggðar sett niður og sinnt matjurtum í sumar. Gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær, einstaklingar sjá sjálfir um að taka frá reit í matjurtagarði. Gott er að afmarka reitina með sjáanlegum hætti. Ekki er tekið gjald fyrir afnot af reit í garðinum. Garðurinn er staðsettur til hliða …
Ábending til rekstraraðila vegna úrgangsmála
Að gefnu tilefni viljum við benda á að grenndarstöðvar fyrir úrgang eru eingöngu ætlaðar heimilisúrgangi frá frístundahúsum í sveitarfélaginu og greiða eigendur þeirra sorphirðugjald fyrir þá þjónustu. Vegna þessa þurfa rekstraraðilar sjálfir að hafa samband við sorphirðufyrirtæki og gera samning við það um sorphirðu frá sínum rekstri. Bent er á að fyrirtæki geta keypt klippikort á endurvinnslustöð sveitarfélagsins að Vesturbraut …
Timbur- og járngámar – sumar 2023
Timbur- og járngámar verða aðgengilegir í dreifbýli Dalabyggðar eins og síðustu ár. Gámarnir verða staðsettir á hverjum stað í vikutíma, frá fimmtudegi til fimmtudags. Stað- og tímastaðsetningar gáma (með fyrirvara um mögulegar breytingar): Frá Til Svæði Staðsetning 22.jún 28.jún Skógarströnd Klungurbrekka 22.jún 28.jún Skógarströnd Vörðufellsrétt 22.jún 28.jún Hörðudalur Blönduhlíð 29.jún 5.júl Miðdalir Árblik 29.jún 5.júl Haukadalur Eiríksstaðir 6.júl 12.júl Laxárdalur …
Vinnuskóli Dalabyggðar hefst 13. júní
Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 13. júní og til loka júlí, fyrir unglinga fædda 2006 til 2010. Starfsmenn Vinnuskóla hafa kost á að nýta sér akstur frístundabíls í júní. Akstur er umsækjendum að kostnaðarlausu. Vegna þess að gert er ráð fyrir að frístundabíll sé kominn í Búðardal kl.09:00, þá mun vinnutími Vinnuskóla sömuleiðis hefjast kl.09:00 hjá öllum. Ef spurningar vakna eða …
Sumarlokun Héraðsbókasafns Dalasýslu 2023
Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað frá 30. júní til og með 9. ágúst nk. vegna sumarleyfa. Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er fimmtudagurinn 29. júní og verður safnið opnað að nýju fimmtudaginn 10. ágúst. Við minnum á sumarbingó Héraðsbókasafnsins, hægt er að sækja bingóspjöld á bókasafnið á opnunartíma þess: Sumarbingó 2023 Þá var bókavörður að taka upp nýja titla, má þar nefna Bella …
Klasi safna, sýninga og setra stofnaður
Í gær, þriðjudaginn 6. júní, var Klasi safna, sýninga og setra formlega stofnaður á Vesturlandi. Viðburðurinn fór fram í Snorrastofu í Reykholti. Stofnunin er afrakstur vinnu sem hefur verið yfirstandandi síðan árið 2019, en í Byggðaáætlun 2018-2024 er rætt um að stofnuð verði ábyrgðarsöfn á landsbyggðinni og söfn fari í auknara samtarf eða sameinist. Í Sóknaráætlun Vesturlands 2019-2024 í kafla …
Af kynningum ímyndaskýrslu og samanburðarskýrslu
Vífill Karlsson fagstjóri atvinnu- og byggðaþróunarsviðs SSV og Bjarki Þór Grönfeldt lektor hjá Háskólanum á Bifröst heimsóttu Dalabyggð í gær, mánudaginn 5. júní með tvær kynningar sem fóru fram í Nýsköpunarsetrinu. Annars vegar var um að ræða kynningu Vífils á skýrslunni „Margur er knár þó hann er smár“ þar sem skoðuð var ítrekuð ólík útkoma úr íbúakönnun landshlutanna. Þar voru …