Aðstoðarleikskólastjóra vantar við Auðarskóla

DalabyggðFréttir

Laus er staða aðstoðarleikskólastjóra við leikskóladeild Auðarskóla.
Auðarskóli, sem er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, er staðsettur í Búðardal. Einkunnarorð skólans eru: Ábyrgð – Ánægja – Árangur.
Leikskólinn er tveggja deilda og að jafnaði dvelja þar 35 – 40 börn frá 12 mánaða aldri. Húsnæði leikskólans er nýlegt og aðstaða og aðbúnaður góður. Næsti yfirmaður aðstoðarleikskólastjóra er skólastjóri.
Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður, skapandi og hefur hæfileika til að virkja krafta starfsfólks til góðra verka.
Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun

  • Góð færni í mannlegum samskiptum

  • Áhugi og metnaður fyrir faglegu leikskólastarfi

  • Skipulagshæfni

  • Frumkvæði

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 12. október.
Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri í síma 899 7037. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið eyjolfur@audarskoli.is
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei