Silfurtún – laust starf í mötuneyti

DalabyggðFréttir

Óskað er eftir aðstoðarmatráði á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal.
Um er að ræða 50% starf í vaktavinnu, unnið aðra hvora helgi, á tímabilinu 15. október til 31. desember 2015.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Eyþór J Gíslason rekstrarstjóri í síma 898 1251.
Umsóknir berist á netfangið eythor @dalir.is fyrir 15. október 2015.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei