Afmælisveisla og nafnasamkeppni

DalabyggðFréttir

Í tilefni af afmæli Eddu-hótelanna laugardaginn 18. júní verður boðið upp á sérstakan afmælismatseðil á Laugum í Sælingsdal.
Starfsfólk Hótel Eddu að Laugum í Sælingsdal hefur nú veitt gamla samkomusalnum í Laugaskóla verðskuldaða andlitslyftingu. Komið hefur verið upp verönd í garðinum þar sem þægilegt er að sitja á góðviðrisdögum og njóta veitinga.
Af þessu tilefni er efnt til hugmyndasamkeppni um nafn á garðinn. Gestir og gangandi eru hvattir til að kíkja við og koma með hugmynd að nafni. Sá sem finnur rétta nafnið hlýtur kvöldverð fyrir tvo í verðlaun.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei