Álagablettir

DalabyggðFréttir

Laugardaginn 7. september (þjóðtrúardaginn mikla 7-9-13) kl. 20 verður haldin kvöldskemmtun í Sauðfjársetrinu í tilefni opnunar sögu- og listasýningarinnar Álagablettir. Þar verða flutt tónlistaratriði og ýmis skemmtilegur fróðleikur.
Dagrún Ósk Jónsdóttir íslenskunemi sem hefur haft veg og vanda af undirbúningi sýningarinnar og þjóðfræðingarnir Jón Jónsson og Rakel Valgeirsdóttir munu miðla fróðleik um álagabletti. Auk þess mun Arnar Snæberg Jónsson stíga á stokk og flytja viðeigandi tónlistaratriði.

Frítt verður inn á skemmtunina sjálfa og sýninguna, en á boðstólum í Kaffi kind verður dulmagnað kvöldkaffi sem kostar 1.000 kr. á mann. Sýningin Álagablettir mun verða uppi á listasviðinu í Sævangi út næsta sumar.
Sauðfjársetrinu á Ströndum er til húsa í félagsheimilinu Sævangi við veg 68, um það bil 12 kílómetrum sunnan við Hólmavík.

Allir eru velkomnir.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei