Allir lesa

DalabyggðFréttir

Í dag, föstudaginn 27. janúar, er blásið til leiks í hinum stórskemmtilega og æsispennandi lestrarlandsleik Allir lesa.
Dalabyggð hvetur íbúa til að mynda lið og skrá lestur í von um að í sveitarfélaginu leynist sigurliðið, og þar með öflugustu lestrarhestar landsins. Dalamenn urðu í fjórða sæti í keppninni í fyrra.
Í ár er einnig er hægt að keppa sem einstaklingur og verður fróðlegt að sjá hver les mest allra Íslendinga.
Vinningshafar fá gjafakort á bókamarkað félags íslenskra bókaútgefanda og stærstu liðin fá girnilegar kræsingar með lestrinum.
Landsleikurinn Allir lesa er auk þess frábært tækifæri til að minnka skjátíma og lesa eitthvað af þeim fjölmörgu frábæru bókum sem fylla hillur landsmanna og bókasafna landsins.
Hægt er að hefja keppni hvenær sem er á tímabilinu 27. janúar til 19. febrúar og hefur fjöldi fólks þegar skráð sig til leiks á allirlesa.is.
Aðstandendur Allir lesa eru Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Heimili og skóla.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei