Alþingiskosningar 2021

DalabyggðFréttir

Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 25. september 2021. Upplýsingar um flest er lýtur að kosningunum er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is.

Kjörskrá
Kjósendur eru á kjörskrá þar sem þeir eiga skráð lögheimili fimm vikum fyrir kjördag, flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá. Kjörskrá fyrir Dalabyggð liggur frammi á skrifstofu Dalabyggðar frá og með 10. september til kjördags, mánudaga – föstudaga kl. 9:00 – 13:00.
Hver sem er getur gert athugasemdir til sveitarstjórnar um að nafn eða nöfn einhverra kjósenda vanti á kjörskrá eða þeim sé þar ofaukið. Heimilt er að gera slíkar athugasemdir til sveitarstjórnar fram á kjördag.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna alþingiskosninganna er hafin. Kjósanda er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar til kjördags. Innanlands er hægt að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Dalabyggð fer fram í afgreiðslu sýslumanns, Miðbraut 11 í Búðardal á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 9:30 til 13:00.

Kjörfundur
Kjörfundur vegna alþingiskosninga í Dalabyggð verður í fundasal stjórnsýsluhússins á Miðbraut 11 í Búðardal og stendur frá kl. 10:00 til kl. 20:00. Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkum á kjörstað.
Kjósendur skulu sýna tillitsemi og virða sóttvarnir á kjörstað.

 

Kjörstjórn Dalabyggðar

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei