Auðarskóli í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Ný skólastofnun í Dalabyggð, sem tekur til starfa þann 1. ágúst nk., heitir Auðarskóli.

Á fundi fræðslunefndar þann 10. júlí sl. var farið yfir þau nöfn sem bárust í nafnasamkeppninni. Fræðslunefnd lagði til að nafnið „Auðarskóli“ yrði fyrir valinu. Byggðarráð samþykkti tillöguna á fundi sínum þann 22. júlí sl.

Guðmundur Kári Þorgrímsson og Helga Guðmundsdóttir, Erpsstöðum, sendu inn vinningstillögunnar. Þau fá bókagjöf afhenta við setningu skólans í ágúst.
Skólinn verður til við sameiningu: Grunnskólans í Búðardal, Tónlistarskóla Dalasýslu, Leikskólans Vinabæjar og Grunnskólans í Tjarnarlundi. Skólastjóri Auðarskóla verður Eyjólfur Sturlaugsson.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei