BARNÓ 2026 – opið fyrir ævintýri!

DalabyggðFréttir

Nú er opið fyrir umsóknir og hugmyndir á Barnó – BEST MEST VEST! 2026

Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026 og nú leitum við að spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára.

Við hvetjum einstaklinga, listafólk, hópa, félagasamtök, skóla, stofnanir og aðra skapandi aðila til að senda inn hugmyndir, t.d. atriðum, listsmiðjum og skapandi verkefnum, tónlist, dansi og sviðslistum eða bara öllu öðru sem gleður, kveikir forvitni og virkjar sköpun barna og ungmenna! Við vekjum athygli að verkefni sem stuðla að inngildingu og fjölbreytileika samfélagsins eru sérstaklega hvött til að sækja um.

Mikilvægt er að viðburðir fari fram á Vesturlandi á tímabilinu 1.–31. október 2026 og fjárstuðningur getur verið í boði fyrir valin verkefni.

Öll innsend atriði og verkefni verða tekin til skoðunar af stýrihópi Barnó sem sér um val á dagskrá hátíðarinnar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2026.

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Sigurstein verkefnastjóra Barnó hjá SSV: sigursteinn@ssv.is

Gerum Vesturland að skapandi ævintýri fyrir börn og ungmenni — BEST ✨ MEST ✨ VEST ✨

Hægt er að nálgast umsóknarform hér.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei