Bach og bögur í baðstofunni

DalabyggðFréttir

Sigrún Valgerður, Sigursveinn, Diljá og Ólöf halda tónleika á Hótel Eddu Laugum laugardaginn 29. júlí kl. 21.
Hjónin Sigrún Valgerður Gestsdóttir og Sigursveinn Magnússon koma fram ásamt dætrum sínum Diljá og Ólöfu Sigursveinsdætrum. Þau starfa öll við tónlist, Ólöf er sellóleikari og -kennari, Diljá er fiðluleikari og -kennari, Sigrún kennari og söngkona og Sigursveinn hefur starfað sem skólastjóri og komið að ýmsum málum sem tengjast tónlist. Öll hafa þau áhuga á flutningi gamallar tónlistar.
Frítt er inn á tónleikana.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei