Bættur rekstur – Betri afkoma

DalabyggðFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi halda fundi til að kynna verkefnið „Bættur rekstur – Betri afkoma til að örva nýsköpun í starfandi fyrirtækjum á Vesturlandi 2019“ sem unnið verður í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið Áttir ehf.  Verkefnið er áhersluverkefni í Sóknaráætlun Vesturlands.

 

Á fundunum verður farið yfir verkefnið og tækifæri starfandi fyrirtækja til að bæta rekstur sinn og afkomu með nýsköpun á öllum sviðum rekstrarins.

 

Vakin er athygli á því að verkefnið Bættur rekstur – Betri afkoma í starfandi fyrirtækjum nær til starfandi fyirirtækja í öllum starfsgreinum og eru forsvarsmenn fyrirtækja hvattir til að mæta og kynna sér hvort verkefnið geti falið í sér tækifæri fyrir viðkomandi fyrirtæki.

 

Fundir miðvikudaginn 13. febrúar

Í Kaupfélaginu á Akranesi kl. 13

Í Símenntunarmiðstöðinni, Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi kl. 16

Í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal kl. 20

 

Fundir föstudaginn 15. febrúar

Á bæjarskrifstofunni í Stykkishólmi kl. 10

Á bæjarskrifstofunni í Grundarfirði kl. 13

Í Átthagastofunni í Snæfellsbæ kl. 17

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei