Ljósmyndir úr safnkosti Byggðasafns Dalamanna af ýmis konar bifreiðum eru nú á sýningu í anddyri stjórnsýsluhússins. Eru þetta eldri hluti bílamynda frá um 1935-1970 og eru allar svarthvítar.
Greiningar á ljósmyndum eru meira en þekkja andlit. Mun skemmtilegra og fróðlegra er að skoða ljósmyndir ef með fylgja bílategundir og saga þeirra ökutækja sem eru á ljósmyndum í Sarpi.
Þeir sem telja sig þekkja til tegunda eða sögu ökutækja geta látið ljós sitt skína og sent inn greiningar. Ýtið á hnappinn “Veistu meira”.
