Síðasti bólusetningardagur í Búðardal fyrir áramót verður þriðjudaginn 19. desember en hægt verður að fá flensusprautu á Reykhólum á miðvikudögum.
Tímabókanir eru í síma 432 1450
Sérstaklega er hvatt til þess að forgangshópar láti bólusetja sig en forgangshópar eru:
- Börn fædd 2020 og yngri sem náð hafa 6 mánaða aldri
- 60 ára og eldri
- Yngri en 60 ára með undirliggjandi sjúkdóma (hjarta-, lungna- og lifrarsjúkdóma, sykursýki, illkynja sjúkdómar og aðrir ónæmisbælandi sjúkdómar).
- Heilbrigðisstarfsmenn
- Þungaðar konur
Covid-19 bólusetning er í boði fyrir sömu forgangshópa og Inflúensubólusetning en er þó ekki í boði fyrir börn yngri en 5 ára
Starfsfólk HVE Búðardal/Reykhólum