Síðustu tvær vikur hafa verið viðburðaríkar í Dalabyggð og víða um sveitarfélagið hefur verið líf og fjör.
Þann 30. júní átti ég fund með Páli S. Brynjarssyni, framkvæmdastjóra SSV, og Lindu Guðmundsdóttur, verkefnastjóra DalaAuðs, þar sem farið var yfir stöðuna á verkefninu DalaAuður. Verkefnið hefur verið afar mikilvægt fyrir Dalabyggð, stuðlað að nýsköpun, atvinnuþróun og aukinni verðmætasköpun, auk þess að efla samstarf og þátttöku íbúa í þróun samfélagsins. Nú fer verkefninu senn að ljúka og þarf að ákveða hvernig tryggja megi áframhaldandi vinnu á grunni þess árangurs sem náðst hefur í gegnum þetta mikilvæga verkefni.

Þann 1. júlí undirritaði ég ráðningarsamning við Einar Björn Þorgrímsson sem ráðinn hefur verið lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar. Það er ánægjulegt að fá Einar til liðs við sveitarfélagið og hlakka ég til samstarfsins á komandi misserum. Hann tekur við starfinu af Ísaki Sigfússyni sem heldur fljótlega til annarra starfa. Ísak hefur staðið sig afar vel á liðnu ári og hélt meðal annars utan um uppbyggingu íþróttahússins ásamt fleirum. Hann hefur átt stóran þátt í þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað síðustu mánuði og óska ég honum velfarnaðar í komandi verkefnum.

Daginn eftir voru fyrstu fundir nýrrar fræðslunefndar og félagsmálanefndar haldnir. Á fundunum var farið yfir helstu verkefni fram undan og lagður grunnur að góðu samstarfi nefndarfólks á kjörtímabilinu.

Hópur vaskra krakka úr vinnuskólanum kíkti í heimsókn í stjórnsýsluhúsið. Þar fengu þau heitt kakó og rjómatertu og gafst tækifæri til að spjalla um þau verkefni sem þau hafa sinnt síðustu vikurnar.

Helgina 3.–5. júlí fór fram bæjarhátíðin Heim í Búðardal. Mikill fjöldi gesta lagði leið sína í sveitarfélagið og dagskráin var bæði fjölbreytt og vel sótt. Hátíðin er mikilvægur vettvangur fyrir íbúa og gesti til að koma saman, njóta samveru og kynna sér það sem Dalabyggð hefur upp á að bjóða. Við það tilefni voru einnig frumsýnd glæsileg kynningarmyndbönd á Dalabyggð sem hafa verið í vinnslu síðustu mánuði en áhersla þeirra er á daglegt líf íbúa í sveitarfélaginu. Metaðsókn var í sundlaugina í Búðardal þá helgina en um húsið fóru vel á fimmta hundrað gestir.


Dalabyggð vinnur nú að því að efla og styrkja þjónustu við börn og fjölskyldur. Í því samhengi hefur verið ákveðið að skoða inngöngu í Barnaverndarþjónustu Vesturlands, sem er samstarfsvettvangur flestra sveitarfélaga á Vesturlandi um rekstur barnaverndarþjónustu. Af því tilefni fengum við góða gesti í heimsókn frá Borgarbyggð, þau Hlöðver Inga Gunnarsson, sviðsstjóra fjölskyldusviðs, og Erlu Björgu Kristjánsdóttur, félagsmálastjóra. Á fundinum voru lögð drög að næstu skrefum vegna aðildar Dalabyggðar að samstarfinu.

Þann 3. júlí var ánægjuleg stund í Dalabúð þegar nýr flygill var formlega afhentur og tekinn í notkun. Verkefnið „Nýr flygill í Dalabúð“ hefur verið í vinnslu undanfarna mánuði og var sett af stað í tilefni af 50 ára afmæli tónlistarskólans í Dölunum, sem nú er hluti af Auðarskóla. Flygillinn var vígður á glæsilegum tónleikum þar sem fram komu listamenn á heimsmælikvarða; Hallveig Rúnarsdóttir, Ólafur Rúnarsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Alvilda Elmarsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir. Frumkvæði að verkefninu áttu Sigurbjörg Kristínardóttir, fyrrverandi tónlistarkennari og organisti, ásamt þeim Kristínu G. Ólafsdóttur og Ólafi Rúnarssyni. Með öflugum stuðningi einstaklinga, fyrirtækja og annarra velunnara tókst að fjármagna kaup á þessu glæsilega hljóðfæri sem mun án efa nýtast menningarlífi sveitarfélagsins um ókomin ár.

Þann 7. júlí fór fram aðalfundur Dalagistingar þar sem ný stjórn tók formlega til starfa. Fráfarandi stjórn mun þó koma saman síðar í sumar á framhaldsaðalfundi þar sem ársreikningur félagsins verður endanlega afgreiddur, en ekki lágu fyrir allar forsendur til að hægt væri að ganga frá uppgjöri síðasta árs.
Sama dag fundaði byggðarráð Dalabyggðar. Á fundinum var farið yfir ýmis mál, meðal annars úthlutun lóða, staðfestingu skipulagsákvarðana umhverfis- og skipulagsnefndar, framtíðarsýn varðandi rekstur barnaverndarþjónustu og fleira. Eitt þeirra mála sem nokkuð var rætt er mikið hagsmunamál fyrir sveitarfélagið, en það er ákvörðun ríkisvaldsins um að breyta einhliða reglugerð um meðferð mála barna með fjölþættar stuðningsþarfir með þeim hætti að mun fleiri börn falli utan fjárhagslegrar ábyrgðar ríkisins. Getur þetta haft töluverð áhrif á rekstur sveitarfélaga og því mikilvægt að fylgjast grannt með framvindunni.
Á miðvikudeginum átti ég spjall við Sigurð Boga blaðamann hjá Morgunblaðinu vegna greinar sem hann hyggst birta á næstu dögum. Þar var farið um víðan völl enda er Sigurður einstaklega laginn við að draga saman það sem brennur á fólki.
Ég þáði kaffisopa hjá eigendum Dalahótels að Laugum í Sælingsdal, þeim Karli Örvarssyni og Halldóru Árnadóttur. Það var ánægjulegt að sjá hversu mikið uppbyggingarstarf hefur átt sér stað á Laugum en þau reka þar hótelið af miklum myndarskap.

Síðastliðinn laugardag var svo haldin Sturluhátíð á Staðarhóli og Laugum í Sælingsdal. Þar var margt um manninn, dagskráin afar áhugaverð og kaffihlaðborðið einstaklega veglegt. Einnig voru tónlistaratriðin sérlega vel heppnuð en þar fluttu nokkur lög systkinin og Dalamennirnir Soffía Meldal Kristjánsdóttir og Benóní Meldal Kristjánsson. Sama dag fór einnig fram aðalfundur Sturlufélagsins, en Einar K. Guðfinnsson er formaður stjórnar og stýrir starfinu af miklum metnaði.


Að lokum er vert að nefna það mikilvæga hlutverk sem sjálfboðaliðar og einstaklingar gegna í samfélagi eins og okkar. Margir þeirra viðburða sem ég hef nefnt, svo sem afhending flygilsins, bæjarhátíðin Heim í Búðardal og Sturluhátíð, yrðu einfaldlega ekki að veruleika nema fyrir frumkvæði, eljusemi og óeigingjarnt framlag þeirra sem koma að undirbúningi og framkvæmd. Ég vil því færa öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg undanfarna daga mínar bestu þakkir fyrir framlag sitt.
Að lokum minni ég á sumarlokun stjórnsýsluhússins sem verður frá 20. júlí til og með 4. ágúst
