Metaðsókn í Íþróttamiðstöð Dalabyggðar helgina 3. – 5. júlí

SafnamálFréttir

Aldrei hafa fleiri gestir heimsótt Íþróttamiðstöð Dalabyggðar á einni helgi en dagana 3.–5. júlí sl. Samkvæmt tölum frá starfsfólki íþróttamiðstöðvarinnar sóttu vel á fimmta hundrað manns sundlaugina um helgina.

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal fór fram á sama tíma og var greinilegt að hátíðargestir nýttu sér sundlaugina og aðra aðstöðu íþróttamiðstöðvarinnar á milli viðburða. Gestir nutu veðurblíðunar og einstaks útsýnis frá sundlaugarsvæðinu á meðan börnin léku sér í sundlaugahoppukastala.

Þessi mikla aðsókn er afar ánægjuleg og undirstrikar mikilvægi nýju íþróttamiðstöðvarinnar sem viðbót við afþreyingar- og íþróttaaðstöðu í sveitarfélaginu. Á fáum mánuðum hefur hún orðið vinsæll staður fyrir hreyfingu, heilsueflingu og samveru.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei