Dagbók sveitarstjóra 9. – 22. nóvember

SveitarstjóriFréttir

Síðustu tvær vikur hafa einkennst af fjölbreyttum verkefnum, allt frá fjárhagsáætlunargerð og samráðsfundum við íbúa til heimsókna í skóla, stofnanir og atvinnulíf. Það er ávallt ánægjulegt að fá tækifæri til að hitta fólk, heyra sjónarmið þess og fylgjast með því öfluga starfi sem unnið er víða í samfélaginu.

Ég heimsótti opið hús í nýjum og glæsilegum nemendagörðum Menntaskólans í Borgarnesi við Borgarbraut 63 þar sem Bragi skólameistari og Halldóra Lóa aðstoðaskólameistari tóku vel á móti mér. Þar gafst mér tækifæri til að skoða garðana og hitta nokkra unga og efnilega Dalamenn sem þar dvelja. Alls eru 8 nemendur sem stunda nám við menntaskólann frá Dalabyggð. Aðstaðan er virkilega glæsileg og greinilegt að vel hefur tekist til. Nemendurnir virtust ánægðir bæði með staðsetninguna og herbergin sín. Þetta verkefni er mikilvæg lyftistöng fyrir allt Vesturland og frábært að ungmennin okkar hafi aðgang að svona góðri aðstöðu og námi svo nálægt heimabyggð.

Ég kíkti einnig við á hjúkrunarheimilinu Silfurtúni og átti gott spjall við Kristínu hjúkrunardeildarstjóra. Ákveðið hefur verið að kaupa nokkra lyftustóla fyrir íbúa heimilisins og verður sá kostnaður greiddur úr gjafasjóði sem varð til vegna arfs sem Árni Guðbrandsson ánafnaði Silfurtúni árið 2018. Stólarnir munu án efa bæta aðstöðu íbúa og nýtast vel um ókomin ár.

Mér var boðið á hádegisfund Arion banka á Hótel Hamri þar sem flutt voru áhugaverð erindi um stöðu og horfur í efnahagsmálum, þróun verðlags og þjónustu við viðskiptavini. Slíkir fundir gefa mikilvæga innsýn í þau ytri skilyrði sem hafa áhrif á rekstur heimila, fyrirtækja og sveitarfélaga.


Sveitarstjórnarfundur fór fram 12. nóvember þar sem fjárhagsáætlun sveitarfélagsins var lögð fram til fyrri umræðu. Mikil vinna hefur farið fram síðustu mánuði við undirbúning hennar og óhætt er að segja að farið hafi verið gaumgæfilega yfir reksturinn. Gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins á yfirstandandi ári, árið 2027 og öll árin sem áætlunin nær til. Jafnframt er gert ráð fyrir lækkun skulda og að skuldaviðmið fari samkvæmt útkomuspá úr 105% í 96% í lok árs 2027. Markmiðið er skýrt: að tryggja jafnvægi í rekstri, viðhalda góðri þjónustu við íbúa og halda áfram nauðsynlegri uppbyggingu innviða.

Haldnir voru tveir kynningar- og samráðsfundir með íbúum um fjárhagsáætlun og þjónustustefnu Dalabyggðar. Þar sköpuðust líflegar og uppbyggilegar umræður og íbúar komu á framfæri fjölmörgum gagnlegum ábendingum. Slíkt samráð er mikilvægur hluti af ákvörðunartöku sveitarfélagsins og ég vil þakka þeim sem gáfu sér tíma til að taka þátt.

Fulltrúar frá KPMG komu í heimsókn og héldu námskeið fyrir kjörna fulltrúa í  sveitarstjórn. Þar var farið yfir hlutverk og ábyrgð kjörinna fulltrúa, stjórnsýslu sveitarfélaga og fjármál þeirra. Jafnframt skapast gott samtal um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og þá vinnu sem að baki henni liggur.

Í síðustu viku heimsótti ég Auðarskóla, bæði grunnskóladeildina og leikskólann. Á báðum stöðum var mikið líf og fjör. Það er alltaf ánægjulegt að sjá það góða starf sem unnið er með börnunum okkar og finna þá jákvæðu stemningu sem ríkir innan veggja skólans.


Á tímabilinu fundaði ég einnig reglulega með sveitarstjórum á Vesturlandi um verkefnið Gott að eldast, sem snýr að því að efla samþætta þjónustu við eldri íbúa. Markmiðið er að tryggja betri samfellu milli heimaþjónustu, heimahjúkrunar, dagdvalar og annarra þjónustuþátta. Verkefnið hefur verið reynt í nokkrum sveitarfélögum með góðum árangri. Þann 20. nóvember funduðu sveitar- og bæjarstjórar af Vesturlandi með félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnari Þór Ingólfssyni, þar sem rætt var um stöðu verkefnisins og næstu skref.


Ég sótti einnig kaffihúsakvöld Auðarskóla sem var einstaklega vel heppnað. Nemendur sáu sjálfir um undirbúning, skemmtun og veitingar og stóðu sig með miklum sóma. Viðburðurinn var vel sóttur og afar notalegt var að sitja með heitt kakó og smákökur og njóta skemmtiatriðanna sem börnin höfðu undirbúið af miklum metnaði.


Að lokum vil ég minna á að nú stendur yfir leit að nýjum nöfnum á íþróttamiðstöðina og sundlaugina í Búðardal. Ég hvet íbúa til að senda inn hugmyndir og taka þátt í verkefninu. Sérstaklega væri gaman ef nöfnin tengdust á einhvern hátt og mynduðu skemmtilega og samræmda heild. Nánari upplýsingar má finna á vef Dalabyggðar

Jólaljósin verða tendruð á morgun þriðjudaginn 24. nóvember. Skátafélagið í samstarfi við Dalabyggð bjóða upp á notalega samverustund með fallegum ljósum, heitu kakói þar sem jólaandinn svífur yfir vötnum.

 

Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei