Dagur nýsköpunar á Vesturlandi

DalabyggðFréttir

Dagur nýsköpunar og úthlutunarhátíð Uppbyggingasjóðs Vesturlandsverður haldinn í Landnámssetrinu í Borgarnesi miðvikudaginn 23. nóvember og hefst dagskrá kl. 13:30.
Uppbyggingasjóður Vesturlands mun úthluta styrkjum til nýsköpunar í atvinnulífi. En sjóðurinn úthlutar styrkjum til nýsköpunar tvisvar á ári og er þetta seinni úthlutun þessa árs.
Bjarni Már Gylfason frá Samtökum iðnaðarins og Oddur Sturluson frá Icelandic startup flytja erindi um nýsköpun.
Í lok dagskrár verða síðan afhent nýsköpunarverðlaun Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi árið 2016.
Allir eru velkomnir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei