Tilnefning: Dalamaður ársins 2026

DalabyggðFréttir

Ákveðið hefur verið að standa fyrir tilnefningu um Dalamann ársins 2026 og tilkynna um niðurstöðuna á hátíðarhöldum 17. júní.

Hér fyrir neðan er slóð á rafrænt eyðublað þar sem er að finna tvær spurningar sem þarf að svara til að atkvæðið sé tekið gilt.
Þetta tilnefningarform verður opið til og með mánudeginum 15. júní nk.

Að því loknu fara tilnefningar með rökstuðningi fyrir menningarmálanefnd sem mun tilkynna um Dalamann ársins 2026 á hátíðarhöldunum.

Athugið að nefndin fær ekki upplýsingar um hver tilnefnir. Upplýsingum verður eytt að lokinni yfirferð.
TILNEFNA DALAMANN ÁRSINS 2026        <– smellið hér

 

Handhafar titils sl. ár:

2025 – Fjölskyldan Rauðbarðaholti
2024 – Guðrún Blöndal
2023 – Heiðursverðlaun á Jörvagleði, Halldór Þórðarson
2022 – Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld
2021 – Bragi Þór Gíslason

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei