Úthlutunarnefnd Sóknaráætlunar Vesturlands fundaði 24. júní síðastliðin en efni fundarins var úthlutun Öndvegisstyrkja. Í byrjun árs 2026 var ákveðið að tillögu fjárlaganefndar að landshlutasamtökin myndu taka að sér að úthluta fjármagni til ýmissa verkefna sem áður var úthlutað af nefndinni sjálfri. Í kjölfarið var samþykkt að deila þeim 280 m.kr. sem runnu til landshlutasamtakanna jafnt á milli allra þannig að hver og einn fékk 35 m.kr. Til viðbótar við það var bætt við 10 milljónum sem ekki var úthlutað úr Uppbyggingarsjóð í janúar og voru því 45 milljónir til úthlutunar.
Hugmyndin með öndvegisstyrkjum var að úthluta færri en hærri styrkjum og úthlutunarreglur voru nokkuð rýmri en í Uppbyggingasjóð til dæmis var mögulegt að sækja um styrk til stofnfjárfestingar í búnaði og aðstöðu.
56 umsóknir bárust um Öndvegisstyrk og var því mikil samkeppni og mörg mjög áhugaverð verkefni sem úthlutunarnefnd ræddi og þurfti að taka ákvörðun um. Að lokum voru 9 verkefni sem stóðu upp úr og fengu styrk.
Þar af voru 2 verkefni í Dalabyggð.
Urður Ullarvinnsla fékk 7 milljóna króna styrk í verkefnið Ullargró sem snýst um að umbreyta aukaafurð íslensks landbúnaðar – vorull, svokölluðu snoði, í lífrænan áburð í formi köggla sem nýtast munu til útiræktunar á grænmeti sem og í heimilisgarða.
Verkefnið Íslensku Jólasveinarnir koma úr Dölunum var úthlutað 4 milljónum til uppbyggingar dreifðrar menningar- og upplifunarleiðar um Dalabyggð. Verkefið felst í því að reisa þrettán þriggja metra háa stálstuðla á sögulega mikilvægum stöðum víðs vegar um héraðið, þar sem hver stuðull er helgaður einum íslenskum jólasveini og tengir sögu hans við ákveðinn þátt í sögu, menningu, atvinnuháttum eða náttúru Dalanna. Á hverjum stað er gestum boðið að kynnast bæði jólasveininum og þeirri sögu sem staðurinn geymir. Stuðlarnir mynda saman heildstæða menningarleið sem tengir saman arfleifð Jóhannesar úr Kötlum, íslenskar þjóðsögur, fræðslu, útivist og ferðaþjónustu.
Önnur verkefni sem hlutu styrk voru:
Matvælakjarni á Hvanneyri
Bakhjarlar Græna Lónsins
Snæfellsjökulsþjóðgarður
Gömlu sporin á Húsafelli
Mælingar á týpu II kollageni
Snæfellsness, UNESCO vistvangur
Heilsumiðstöðin Lind
Nánari upplýsingar um verkefnin má finna á vef SSV: http://www.ssv.is
