Eiríksstaðir tilnefndir til Eyrarrósarinnar

DalabyggðFréttir

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Eiríksstaðir er eitt þriggja verkefna sem tilnefnd eru í ár. Hin tvö eru: Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra og Skjaldborg – heimildarmyndahátíð á Patreksfirði.

Með Eyrarrósinni fylgir fjárstyrkur að upphæð 1,5 milljónum króna og verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar. Hin verkefnin sem tilnefnd eru hljóta 200 þúsund króna framlag. Öll verkefnin hljóta að auki flugferðir frá Flugfélagi Íslands.

Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin og Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra flytur ávarp við athöfnina. Þá flytja tónlistarmennirnir Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson tónlist.

„Eyrarrósin er veitt á ári hverju einu menningarverkefni á landsbyggðinni. Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Markmið Eyrarrósarinnar er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Auglýst er eftir umsóknum í fjölmiðlum ár hvert og eru umsækjendur meðal annars ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn. Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefnir og velur verðlaunahafa,“ segir í tilkynningu.
Í fyrra hlaut Landnámssetrið í Borgarnesi Eyrarrósina en aðrir handhafar hennar eru Rokkhátíð alþýðunnar – Aldrei fór ég suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Listahátíð í Reykjavík 2010 verður haldin frá 12. maí til 5. júní 2010.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei