Skrifað undir samning um félagsþjónustu

DalabyggðFréttir

Skrifað var undir samning um félagsþjónustu og þjónustu í barnaverndarmálum við Borgarbyggð fyrir skömmu. Það voru sveitarstjórarnir Grímur Atlason og Páll S. Brynjarson sem handsöluðu hann í Búðardal.
Samningurinn tryggir Dalamönnum betri þjónustu en hingað til hefur verið hægt að veita í sveitarfélaginu. Föst viðvera félagsráðgjafa verður 1. og 3. þriðjudag í hverjum mánuði. Auk þess verður hægt að leita beint eftir þjónustu þess fyrir utan á skrifstofutíma Borgarbyggðar. Nánar verður gert grein fyrir samningnum í næsta Dalapósti sem stefnt er að komi út fyrir 16. febrúar nk.

Á heimasíðu Dalabyggðar er stefnt að því að setja reglur í tengslum við félagsþjónustu auk þess sem rafrænar umsóknir og fleiri skjöl verða þar vistuð.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei