Margar hendur vinna svo sannarlega létt verk!
Í gær, miðvikudaginn 16. september var farið af stað í endurnýjun á parketgólfinu í íþróttamiðstöðinni. Fyrsta verkið fólst í því að rífa upp parketið svo að hægt sé að leggja nýtt. Íþróttafélaginu Undra bauðst að taka verkið að sér í fjáröflunarskyni og óskaði félagið eftir sjálfboðaliðum til þess að mæta og rífa upp parketið.
Hafist var handar kl 17:00 og var allt parketið komið upp af gólfinu rétt áður en klukkan sló 21:00 en áætlað var að verkið gæti tekið tvær kvöldstundir. Verkið gekk gríðarlega vel og hratt fyrir sig og voru 22 sjálfboðaliðar á staðnum þegar mest lét. Sjálfboðaliðar mættu með sín eigin verkfæri og tól og deildu sín á milli. Fyrst voru gólflistar teknir upp meðfram veggjum, svo voru festingar fyrir stangir og þess háttar rifið upp úr gólfinu. Gólfið var síðan sagað í fleka, um 2×2 metrar að stærð. Því næst voru flekarnir teknir upp og staflað upp.
Af hverju er verið að skipta um gólf?
Tilefni endurnýjunar á parketgólfinu er galli í virkni þess sem kom í ljós fljótlega eftir að húsið var tekið í notkun. Eftir tilraunir til viðgerða og ítarlega skoðun í vor var niðurstaðan sú að byggingarverktakinn myndi endurnýja gólfið í heild til þess að það uppfyllti fyrirskrifaðar kröfur. Dalabyggð ber því ekki kostnað af útskiptunum, en vissulega skerðist notkun hússins meðan á verkefninu stendur. Samstarfið við aðal- og undirverktaka hefur verið gott og til fyrirmyndar hvernig ábyrgð er tekin á gallanum og eftirfylgnin með þeim hætti að lokaniðurstaðan verði fullnægjandi.
Áætlað að endurlagning og frágangur geti tekið allt að tvær vikur, en skólanum, íþóttafélögum og öðrum reglulegum notendum verður haldið upplýstum um framgang og hvenær salurinn verður aftur tilbúinn til notkunar.
Myndasería

sjálfboðaliðar að störfum

Verkstjórinn sjálfur á einum og hálfum fæti

fullt hús af sjálfboðaliðum

Blys bauð uppá kvöldmat

hér hjálpast allir að

allt að gerast

spáð og spekúlerað

einn á söginni og hinir skiptast á að bera fleka

endaspretturinn

kviss bamm búmm!
