Þá er komið að því!
Miðvikudaginn 23. september hefst íþróttavika Evrópu en við þjófstörtum henni á þriðjudaginn þann 22. september með sjósundi, sundnámskeiði fyrir yngsta stig og skriðsundsnámskeiði fyrir fullorðna . Dalabyggð tekur að vanda þátt í vikunni og er búið að setja saman veglega dagskrá í samvinnu við samstarfsaðila okkar en í ár unnum við dagskránna saman með UDN og Reykhólahreppi! Íþróttavika Evrópu er styrkt af #BeActive
Lestu meira um viðburðina
Viðburðir sem verða bæði í Dalabyggð og Reykhólahreppi
Sundnámskeið 1.-4. bekk: Guðmundur Brynjar Júlíusson kemur frá Akranesi og kennir yngstu skólabörnunum okkar sundtökin! Guðmundur hefur áratuga reynslu af sundi.
Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna: Fyrrnefndur Guðmundur verður með Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna! Það er alltaf pláss fyrir bætingu þegar kemur að sundi!
Námskeið á skólatíma þann 23. september: Borðtennissamband íslands, Frjálsíþróttasamband Íslands og Glímufélag Dalamanna ásamt Bergþóri Olivert Thorstensen, Frisbígolf-snillingi verða með námskeið í skólunum okkar Auðarskóla og Reykhólaskóla.
Mætum í ræktina!: Mætum í ræktina er tími í líkamsrækt þar sem einstaklingar geta komið og fengið kennslu á helstu tækin í ræktinni, talað við þjálfara og fengið ráð um það hvernig er best að koma sér af stað!
Viðburðir í Dalabyggð:
Flotnámskeið: Guðríður S Brynjarsdóttir (Gauja) verður með flotnámskeið í sundlauginni í Búðardal. Flotnámskeið er slakandi vatnsmeðferð þar sem notast er við sérstakan flotbúnað í laug til að losa um vöðvaspennu og draga úr streitu. Hámark 15 manns geta skráð sig. Skráðu þig með þvi að senda SMS-ið „fullt nafn – FLOT“ í síma 773-3357.
Fjallganga: Gengið verður frá Laugum í Sælingsdal inn í Ránargil, Hittumst við aðalinnganginn að Dalahótel
Vinyasa jóga: Carla verður með jógatíma í Dalabúð. Vinyasa jóga eða flæðisjóga virkar þannig að í stað þess að halda jógastöðum lengi þá „flæðir“ iðkandinn jafnt og þétt frá einni stöðu yfir í aðra.
Sundlaugapartý: Sundlaugapartý í nýju fallegu sundlauginni okkar í Búðardal! Þar verðu DJ og mögulega diskóljós !
Viðburðir í Reykhólahreppi
Sjósund: það verður tækifæri fyrir þá allra hörðustu að skella sér í sjósund með Kolfinnu Ýr Ingólfsdóttur!
Vaðalfjöll – Fjallganga: Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir verður með umsjón yfir fjallgöngunni uppá Vaðalfjöll þann 23. september. lagt er upp með að hittast við afleggjarann upp að vaðalfjöllum klukkan 16:30. Þá er sameinast í bíla, keyrt áleiðis og síðan gengið.
Qigong námskeið: Qigong námskeið með Þórdísi! Qigong er aldagömul kínversk heilsurækt sem sameinar hægar hreyfingar, djúpa öndun og einbeitingu til þess að efla flæði lífsorkunnar í líkamanum.
Flotnámskeið: í nafni flothettu bjóðum við þig velkominn í vatnið til að dvelja vel studd í þyngdarleysi, njóta nudd og hreyfingar á meðan þú hefur tækifæri til að hlusta dýra á líkama þinn og sál.
Flotnámskeið fyrir börn: leikum og lærum saman í vatninu! við opnum samverustundina með nokkrum leikjum og æfingum og höfum gaman!
Danstímar fyrir 5.-10. bekk: Caryna Bolivar kemur og verður með námskeið í íþróttahúsinu á Reykhólum. Caryna er þaulvanur Yoga-, Zumba-, hóptíma- og einkaþjálfari!
Hreyfing 60+: öllum 60+ ára er boðið að koma og stunda líkamsrækt í íþróttahúsinu á Reykhólum

