Endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar – Skipulags- og matslýsing

DalabyggðFréttir

Við minnum á að athugasemdafrestur við skipulags- og matslýsingu vegna endurskoðunar Aðalskipulags Dalabyggðar er til 1.apríl n.k. og endurbirtum hérna tilkynningu skipulagsfulltrúa frá 10.mars s.l.:

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 5. mars var lögð fram og samþykkt til kynningar skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar Aðalskipulags Dalabyggðar 2004-2016. Í skipulagslýsingunni er m.a. gerð grein fyrir tildrögum og ástæðum endurskoðunar aðalskipulagsáætlunarinnar, helstu viðfangsefnum, forsendum, stöðu og gildandi stefnu, samráði, tímaferli og umhverfismati áætlunar.

Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er lýsingin kynnt fyrir hagsmunaaðilum og tækifæri gefið á að skila inn umsögnum eða athugasemdum. Skipulagslýsingin verður til sýnis í stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar að Miðbraut 11, 370 Búðardal og hérna að neðan, frá 11. mars til 1. apríl 2020. Og gefst athugasemdafrestur þangað til.

Athugasemdum ber að skila til skrifstofu skipulagsfulltrúa í stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar eða á skipulag@dalir.is merkt „Endurskoðun Aðalskipulags“.

Nálgast má skipulags- og matslýsingu vegna endurskoðunar undir „Aðalskipulag“ hérna á síðunni eða með því að smella hér: Lýsing – Aðalskipulag Dalabyggðar 

Dalabyggð 10. mars 2020.

Þórður Már Sigfússon,

skipulagsfulltrúi.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei