Félagsleg liðveisla

DalabyggðFréttir

Starfsmaður óskast í félagslega liðveislu í Búðardal. Vinnutími er mánudaga-fimmtudaga kl. 15-17 og þrjá föstudaga í mánuði kl. 12-17. Starfshlutfall er um 27%.
Laun skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SDS. Ráðið verður í starfið frá 19. september 2011 eða eftir samkomulagi.
Umsóknir sendist á netfangið sveitarstjori@dalir.is eða á skrifstofu Dalabyggðar, bt. sveitarstjóra, Miðbraut 11, 370 Búðardal.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Pálsson sveitarstjóri í síma 430 4700 eða Inga Vildís Bjarnadóttir félagsráðgjafi í síma 433 7100.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei