Fjalla-Eyvindur í Tjarnarlundi

DalabyggðFréttir

Kómedíuleikhúsið sýnir Fjalla-Eyvind í Tjarnarlundi 24. apríl, sumardaginn fyrsta kl. 20:30. Miðaverð er 2.500 kr. og enginn posi.
Fjalla-Eyvindur er án efa frægasti útilegumaður allra tíma hér á landi, enda í útlegð í fjóra áratugi. Hann var í raun einfaldur sveitapiltur en þótti strax í föðurgarði öðruvísi en jafnaldrar sínir. Eyvindur var mikill hæfileikamaður, smiður góður, fimur mjög og meira að segja læs. Einnig þótti hann eigi ómyndarlegur. Samt varð hann að halda á fjöll eftir að hafa verið grunaður um þjófnað. Já, aðeins grunaður en aldrei var neitt sannað. Svo kynntist hann Höllu sinni. Í leikritinu er sagan túlkuð á nýjan, óvæntan og svolítið kómískan máta.
Höfundur og leikari er Elfar Logi Hannesson. Tónlist gerði Guðmundur Hjaltason og leikstjórn annaðist Marsibil G. Kristjánsdóttir.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei