Forsetaheimsókn 6. – 7. desember 2017

DalabyggðFréttir

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú koma í opinbera heimsókn í Dalabyggð dagana 6. og 7. desember.
Miðvikudagurinn 6. desember
15:00 Hjúkrunarheimilið Fellsendi.
15:40 Rjómabúið Erpsstöðum.
16:10 Ostagerð MS í Búðardal.
16:40 Leifsbúð. Opinn fundur um framtíð í ferðaþjónustu. Kynnt verða áform um uppbyggingu í Ólafsdal, Vínlandssetur og söguhringinn um Fellsströnd og Skarðsströnd. Kaffiveitingar.
18:10 Byggðasafn Dalamanna á Laugum í Sælingsdal.
Fimmtudagurinn 7. desember
08:30 Forseti og föruneyti fer um Skarðsströnd og Fellsströnd með leiðsögn og stoppað stuttlega á fáeinum stöðum.
11:40 Heimsókn í Auðarskóla, leikskóladeild og grunnskóladeild. Forseta og föruneyti er boðið í mat í skólanum.
13:15 Eiríksstaðir.
14:00 Kvennabrekka. Skilti um Árna Magnússon fræðimann og handritasafnara afhjúpað af forseta Íslands.
14:40 Kringla. Heimsókn á sauðfjárbú.
15:30 Silfurtún.
17:00 Fjölskylduskemmtun í Dalabúð. Veitingar úr héraði og fjölbreytt skemmtiatriði.
Sveitarstjórn Dalabyggðar mun fylgja hjónunum um héraðið. Heimamenn eru hvattir til að taka þátt á hverjum stað og þá sérstaklega að fjölmenna á opinn fund í Leifsbúð, heimsókn á Byggðasafn Dalamanna, afhjúpun skiltis við Kvennabrekku og fjölskylduskemmtun í Dalabúð.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei