Fræðsludagskrá – fyrri hluti nóvember 2022

DalabyggðFréttir

Og fræðsludagskrá í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar heldur áfram. Þennan fyrri hluta nóvember verður annars vegar kynningarfundur og hins vegar kaffispjall á dagskrá:

 

Miðvikudagurinn 2. nóvember kl.17:00  – Kynningarfundur:

„HEFJA REKSTUR/STOFNA FYRIRTÆKI – HVAÐ GERI ÉG?“

Ólafur Sveinsson fagstjóri atvinnuþróunar hjá SSV fer yfir fyrstu skrefin við að stofna fyrirtæki og hefja eigin rekstur.

 

Þriðjudagurinn 8. nóvember kl.18:00  – Kaffispjall:

„DALABYGGÐ – HLUTVERK OG SKYLDUR“

Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri ræðir hlutverk sveitarfélagsins og framtíðarhorfur.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei