Hér má sjá Stjórnsýsluhús Dalabyggðar að Miðbraut 11

Opinn fundur: Atvinnurekendur og fyrirtæki í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Atvinnumálanefnd Dalabyggðar boðar til fundar þriðjudaginn 25. febrúar kl. 16 í stjórnsýsluhúsinu með atvinnurekendum og fyrirtækjum á svæðinu.

Fundurinn er liður í átaksverkefni til að styðja við hugmyndir og þróun rekstrar núverandi fyrirtækja í sveitarfélaginu.

Á fundinn koma fulltrúar frá KPMG sem unnu nýverið sviðsmyndagreiningu um þróun atvinnulífs á Vesturlandi fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Þeir munu kynna greininguna og verða svo með vinnustofu fyrir þátttakendur á fundinum. Með þessu móti mun skýrari vinna skila sér af fundinum sem verður til úrvinnslu í framhaldinu.

Að því loknu verða umræður um stöðu, hugmyndir og þróun með atvinnumálanefnd Dalabyggðar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei