Álagning fasteignagjalda

DalabyggðFréttir

Álagningu fasteignagjalda (fasteignaskattur, lóðarleiga, vatnsgjald, sorpgjald, fráveita og rotþróargjald) er lokið og hafa álagningarseðlar verið birtir á Island.is.

Álagningarseðlar verða ekki sendir á pappír heldur aðeins birtir á Ísland.is.

Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í tölvupósti eða útprentaðan geta sent beiðni um slíkt á dalir@dalir.is eða hringt í skrifstofu Dalabyggðar á símatíma, kl. 9-13.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei