Fundur um atvinnumál

DalabyggðFréttir

Byggðarráð Dalabyggðar boðar til opins fundar um atvinnumál í Leifsbúð, fimmtudaginn 24. mars kl. 18-20.
Fundarefni verður stoðkerfi atvinnulífsins á Vesturlandi og möguleikar í ferðaþjónustu.
Framsögumenn eru Ólafur Sveinsson frá Atvinnuþróun SSV, Torfi Jóhannesson hjá Vaxtarsamningi Vesturlands, Rósa Björk Halldórsdóttir hjá Markaðsstofu Vesturlands og Kristján Ágúst Magnússon ferðaþjónustubóndi á Snorrastöðum.
Boðið verður upp á kaffi og fundarmenn geta keypt sér súpu á fundinum.
Fundurinn er sá fyrsti í fundaröð um atvinnumál sem byggðarráð stendur fyrir á árinu. Afmarkað umræðuefni verður tekið fyrir hverju sinni. Gert er ráð fyrir næsta fundi í aprílmánuði.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei