Gengið um Reykhólasveit

DalabyggðFréttir

Dagana 21. – 24. júní verður útivistarhelgin Gengið um sveit í Reykhólahreppi haldin í þriðja skipti. Um er að ræða lengri og skemmri göngur undir leiðsögn, sem ættu að hæfa öllum aldurshópum.
Takmarkaður fjöldi er í löngu gönguna (kjötsúpugönguna) og mælt með því að fólk skrái sig í hana sem allra fyrst. Bætt hefur við leiðsögumanni í hana til að anna eftirspurn
Mælt er með að fólk skrái sig fyrir 20. júní á netfangið info@reykholar.is eða í síma 894 1011 (Harpa Eiríksdóttir). Hægt er að skrá sig í göngur eftir 20. júní en þá er ekki afslátturinn veittur.
Hægt er að kaupa helgarpakka og fjölskyldupakka sem gefur 50% afslátt í sund í laugarnar á Reykhólum og í Djúpadal, í þaraböðin hjá SjávarSmiðjunni á Reykhólum, á Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum og á sýninguna hjá Össusetri Íslands í gamla Kaupfélaginu í Króksfjarðarnesi. Þar mun Handverksfélagið Assa jafnframt veita þeim sem taka þátt í göngunum 50% afslátt af kaffi og vöfflum.
Þeir sem skrá sig í tvær stuttar göngur eða löngu gönguna fá afslættina líka.

Föstudagur 21. júní

Föstudagurinn er helgaður börnunum. Hestarnir Örn, Háleggur og Mósa mæta á svæðið og aldrei að vita nema vinur þeirra hann Heykir komi með. Hestarnir koma um tíuleytið á Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum og verða til klukkan fimm. Teymt verður undir krökkum kl. 11:30, 12:30 og 14:30.
Ratleikur um Reykhóla verður kl. 16 og byrjar hjá Báta- og hlunnindasýningunni. Fengin eru svarblöð þar og fyrsta vísbendingin. Síðan mun leikurinn taka þátttakendur um Reykhóla. Leikurinn verður uppi út júní, en í júlí mun nýr leikur verða settur upp.
Deginum lýkur á barnagöngu upp að Staðarfossi á Stað á Reykjanesi kl. 18. Gott að taka með sér nesti. Gamla réttin verður skoðuð og buslað í ánni. Harpa Eiríksdóttir á Stað leiðir gönguna. Mæting á Stað kl. 17.50, lagt af stað kl. 18. Vegalengdin er um einn km og lítil hækkun lítil. Gangan tekur um tvær klst.

Laugardagur 22. júní

Langa gangan (kjötsúpugangan) um Hallsteinsnes. Leiðsögumenn eru Þröstur Reynisson og Sveinn Ragnarsson. Farið verður frá Gröf í Þorskafirði að réttinni í Djúpafirði. Frábær leið sem gefur mikla möguleika á að sjá haferni. Mæting er kl. 10 hjá gömlu réttinni í Djúpafirði þar sem sameinast verður í bíla yfir að Gröf. Engin hækkun á leiðinni að ráði. Reikna má með 5-7 klst. í ferðina. Boðið verður upp á kjötsúpu rétt eftir að farið er fyrir nesið.
Söguganga um Skóga í Þorskafirði, æskuslóðir séra Matthíasar. Leiðsögumaður er Sveinn Ragnarsson. Mæting er við minnisvarðann um Kollabúðafundi í botni Þorskafjarðar, lagt af stað kl. 20. Skoðaðar búðatóftir, rölt um Jochumslund, Hnausaskóg. Skoðaðar rústir eða minjar sem ekki eru til beinar heimildir um. Mjög létt ganga, vegalengdin er um 1,5 km og tekur eina og hálfa til tvær klst. Lögð verður áhersla á sögu í þessari skemmtilegu göngu. Tilvalin fyrir alla fjölskylduna.

Sunnudagur 23. júní

Í fossagönguna er mæting kl. 10 á plani beint á móti bænum í Gautsdal. Gengið um 2,5 km fram dalinn. Fara þarf yfir litla á og gengið niður að gamalli fjárrétt. Réttarfossinn skoðaður, fer eftir vatnsmagni í ánni hversu nærri fossinum er hægt að komast. Gengið að bílunum aftur. Frekar létt ganga, lítil hækkun, tími 2-3 klst.
Barnaganga að Hlíð í Þorskafirði. Fararstjóri verður Harpa Eiríksdóttir eða Rebekka Eiríksdóttir. Farið verður á bílum áleiðis að Hlíð, fært fyrir jeppa. Mæting kl. 15 hjá afleggjaranum að Hlíð, sem er hjá Hofsstöðum. Gott að hafa nesti með sér. Létt ganga með stoppi við Hlíðará og fossinn, lítil hækkun. Kannski heilsa álfarnir sem þar búa göngufólkinu.

Mánudagur 24. júní, Jónsmessa

Jónsmessuganga á Vaðalfjöll. Leiðsögumaður verður Sveinn Ragnarsson. Mæting við Hótel Bjarkalund kl. 21.30. Gangan er róleg í fyrstu og lítil hækkun. Þegar nær dregur er svolítið brattara og leiðin upp á sjálf Vaðalfjöllin er frekar brött en þó er ekki um klifur að ræða. Á toppnum er mjög gott útsýni. Stefnt er að því að vera á toppi Vaðalfjalla um miðnætti. Fólk fer síðan heim þegar hverjum hentar. Vegalengdin er 3,5 km aðra leiðina og hækkun rúmir 400 m.
Og munum að fara varlega þegar gengið er um ókunnar slóðir.

Verðskrá

Sögugangan um Skóga, Fossgangan og Jónsmessuganga á Vaðalfjöll
  • Fullorðnir 1.000 kr.
  • 14-16 ára 500 kr.
  • 13 ára og yngri – frítt í fylgd með fullorðnum
Langa kjötsúpugangan um Hallsteinsnes
Verð með kjötsúpu:
  • Fullorðnir 3.500 kr.
  • 14-16 ára 2.000 kr.
  • 13 ára og yngri – kjötsúpa 500 kr, en frí ganga.
Verð án kjötsúpu:
  • Fullorðnir 2.000 kr.
  • 14-16 ára 1.000 kr.
  • 13 ára og yngri – frítt í fylgd með fullorðnum.
Barnagöngur
  • Hver barnaganga kostar 250 kr. Ef keypt er í allar fá krakkarnir afslátt hjá öllum samstarfsaðilum Gengið um sveit svo og einn frían ratleik á Báta- og hlunnindasýningunni í kaupbæti.
Frekari upplýsingar um útivistarhelgina er að fá í netfanginu info @ reykholar.is og á Facebooksíðunni Gengið um sveit – Reykhólahrepp.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei