Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Glókolli – styrkjum til verkefna og viðburða á málefnasviðum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis.
Glókollsstyrkir geta numið allt að einni milljón króna fyrir hvert verkefni en þeir eru ætlaðir til verkefna og viðburða á sviði háskólamála, iðnaðar, nýsköpunar, rannsókna og vísinda, hugverkaréttinda, fjarskipta, netöryggis og upplýsingasamfélags.
Umsóknarform má nálgast á minarsidur.hvin.is og allar frekari upplýsingar um styrkina er að finna á sérstakri Glókolls-síðu á vef Stjórnarráðsins.